17. júní 2008 klukkan 23:42
Loksins búin að henda inn fuuuullt af myndum bæði frá 80´s flippinu okkar Tótu og afmælinu hennar Siggu þarsíðustu helgi :)
Þannig er mál með vexti að við Tóta vorum á leiðinni á árshátíð hjá Pumping Iron(ræktini okkar) og það átti að vera 80´s þema! Svaka stuð og svona....huhummmm svo erum við komnar í gallana okkar hahah og förum að salnum og þá var fullt af fólki fyrir utan að reykja og allir í venjulegum fötum!!??! uuuh við alveg... bíddu var ekki 80´s þema eða var Jimmy að focka í okkur bara sjitt sjitt sjitt sjitt.....
Á endanum þorðum við ekki inn og hringdum í Jimmy... þá kom í ljós að vegna þess hve fáir gátu mætt var hætt við árshátíðina eða já henni frestað... og við alveg...uuuuhhh en það voru nokkrir krakkar úr ræktinni úti að borða á Oliver og Jimmy vildi endilega að við kæmum bara. En þar sem við vorum svona skemmitlega klæddar...

þá ákváðum við að fara heim til Tótu og skella í okkur nokkrum bjórum og sjá svo til... eftir nokkra sannfæringu samþykkti Tóta mín að koma með mér í bæinn 80´s style heheh en hún skipti samt um föt en fór með greiðsluna og makeupið. Og vöktum við þó nokkra athygli í bænum.. samt aðallega gamlar kellingar sem eltu okkur á röndum og fannst við alveg æðislega flottar hahaha
Svo var afmæli hjá Siggu þarsíðustu helgi á Aroma og var sæmileg mæting.. fljótandi bjór og mohito! Hrikalega skemmti ég mér vel þetta kvöld samt! langt síðan við Heiða höfum farið saman út og skemmt okkur svona vel! :) Endalaust mikið hlegið..allvega seinni part kvöldsins..

Jæja þetta er gott í bili
Marta
25. maí 2008 klukkan 20:27
Marta
20. febrúar 2008 klukkan 16:59
jahá! ég var að vesenast á netinu að læra Þýsku um daginn og fór inn á þá stórsniðugðu síðu wikipedia.org.... það fyndna var að ég ákvað að prófa að skrifa marta í wikipedialeitina og sjá hvort eitthvað sniðugt kæmi upp... það hafa örugglega allir "googlað" nafnið sitt en kannski ekki allir sem hafa "wikipediað" nafnið sitt oooooooooooog þetta er það sem ég komst að... huhumm
MARTA
Metropolitan Atlanta Rapid Transit Authority
ÉG ER SEMSAGT LESTARSTÖÐ, RÚTUSTÖÐ OG FLEIRA OG FLEIRA! HAHAHAHAHA ALGJÖR BRANDARI 
Þeir eru með heimasíðu http://www.itsmarta.com/
það er einn dálkur sem heitir "USING MARTA" og þar er hægt að fá upplýsingar eins og tildæmis:
> Fare information
> How to use MARTA
> Hours of opperation
> Parking information
> MARTA accessebility
> New rider guide
Og annar dálskur sem heitir "EXPLORING MARTA"
> when is MARTA Smartest?
> upcoming events
> weekly and weekend passes
Æji mér fannst þetta alveg bara brandari! og upplyfting frá þýskuglósunum haha og já það er alveg hægt að misskilja þetta líka....svona fyrir perrana hahaha

p.s. ég heimta comment takk :)
já og auðitað!!
Ingunn og Garpur áttu loksins litla stúlku í gærkvöldi eftir langa bið
óskum þeim innilega til hamingju! :)
Marta
04. febrúar 2008 klukkan 23:47
Marta
15. janúar 2008 klukkan 22:06
Marta
11. janúar 2008 klukkan 21:00

This is what I´m gonna be doing this weekend
Marta
16. desember 2007 klukkan 23:20
Aðeins átta dagar í jólin!! jæks!
ég er búin að vera að vinna eins og fáviti til 1 og 2 á nóttunni svo ég er engan vegin komin í jólaskapið :( svo vantar líka snjóinn, um leið að það sjóar pínu kemur bara massa rigning og skolar öllu burt uss frekar myndi ég vilja hafa heitt eins og hjá gæjunum á myndinni sem ég set hérna fyrir neðan


Það er komið nafn á litla frænda by the way! MAGNÚS VÍKINGUR HJALTASON :) hrikalega krúttlegur prinsinn :)
Marta
06. desember 2007 klukkan 23:00
Þann 4.desember 2007, þ.e.a.s í fyrradag fæddist lítill prins í Indianafylki U.S.A.
Gullmolinn var 15 merkur og 52 cm. Fyrir þá sem ekki vita þá eru foreldrarnir Hjalti bróðir og Hulda mágkona

þeirra fyrsta barn.
Drengurinn lét nú bíða eftir sér, Hulda var sett 23.nóvember en var svo sett af stað þann 4.des fyrst prinsinn neitaði að koma úr hlýjunni hjá mömmu sinni. Fæðingin gekk víst bara vel og Hulda stóð sig eins og hetja þrátt fyrir að hafa misst svolítið af blóði. Ég er annars ekki búin að heyra í Hjalta persónulega, vill svo til að þau tvö skipti sem ég hef reynt að hringja þá eru þau upptekin, eins og við má búast þegar svona mikið gengur á í lífinu

Hjalti ætlar víst að hringja í mömmu á eftir og gefa upp hvað prinsinn kemur til með að heita :) hlakka til !!

Get ekki beðið eftir að fá að hitta litla frænda í persónu.....hvenær sem það verður...hann býr nú í annarri heimsálfu
Marta
04. desember 2007 klukkan 09:30
Ok, mér er loksins búið að takast að setja inn myndirnar síðan við skrifstofu/lager-liðið skelltum okkur til Slóveníu.... þetta er bara búið að taka 8mánuði!! hehe en þær eru hérna fyrir ofan í "myndir" ef eitthverjir hafia áhuga á að kíkja
http://smarta.bloggar.is/album/42772/Rétt að taka það fram að þetta er ekki ritskoðað, tók mig u.þ.b. 2tíma í gærkvöldi að henda þessu inn!
Marta
Marta
03. desember 2007 klukkan 00:03
Marta