Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Undirsíðukubbur

Leit

Myndageðveiki!

17. júní 2008 klukkan 23:42
Loksins búin að henda inn fuuuullt af myndum bæði frá 80´s flippinu okkar Tótu og afmælinu hennar Siggu þarsíðustu helgi :)

Þannig er mál með vexti að við Tóta vorum á leiðinni á árshátíð hjá Pumping Iron(ræktini okkar) og það átti að vera 80´s þema! Svaka stuð og svona....huhummmm svo erum við komnar í gallana okkar hahah og förum að salnum og þá var fullt af fólki fyrir utan að reykja og allir í venjulegum fötum!!??! uuuh við alveg... bíddu var ekki 80´s þema eða var Jimmy að focka í okkur bara sjitt sjitt sjitt sjitt.....
Á endanum þorðum við ekki inn og hringdum í Jimmy... þá kom í ljós að vegna þess hve fáir gátu mætt var hætt við árshátíðina eða já henni frestað... og við alveg...uuuuhhh en það voru nokkrir krakkar úr ræktinni úti að borða á Oliver og Jimmy vildi endilega að við kæmum bara. En þar sem við vorum svona skemmitlega klæddar...



þá ákváðum við að fara heim til Tótu og skella í okkur nokkrum bjórum og sjá svo til... eftir nokkra sannfæringu samþykkti Tóta mín að koma með mér í bæinn 80´s style heheh en hún skipti samt um föt en fór með greiðsluna og makeupið. Og vöktum við þó nokkra athygli í bænum.. samt aðallega gamlar kellingar sem eltu okkur á röndum og fannst við alveg æðislega flottar hahaha

Svo var afmæli hjá Siggu þarsíðustu helgi á Aroma og var sæmileg mæting.. fljótandi bjór og mohito! Hrikalega skemmti ég mér vel þetta kvöld samt! langt síðan við Heiða höfum farið saman út og skemmt okkur svona vel! :) Endalaust mikið hlegið..allvega seinni part kvöldsins..



Jæja þetta er gott í bili

Esjan!

25. maí 2008 klukkan 20:27

Ég fór í mína fyrstu göngu á Esjuna í gær!
esjan
Alveg fáránlegt að vera Íslendingur og hafa aldrei gengið á Esjuna. En allavega við Tóta vorum búnar að plana að fara að hádegi á laugardag í gönguna gríðarlegu... en.... Tóta mín datt "óvart" í það á föstudagskvöldinu Hissa mér til mikillar gremju..
Klukkan 11 var Tóta mín ekki að svara símanum þótt ég hafi hringt og hringt og hringt... svo mín fór af stað og náði henni frammúr á endanum við óþolandi dyrabjöllulagið mitt hehe og ég bókstaflega dró greyið með mér, samt smurði ég nú handa henni brauð með skinku og osti og kókómjólk til að reyna að "butter" her up Ullandi

Svo hittum við liðið úr Pumping Iron uppí Dugguvogi og þá var lagt af stað! Tóta var nú ekki alveg á þeim buxunum að fara með en ég náði að "guilt-a" hana til að koma.

Og þá var lagt í hann...

Við vorum strax orðnar móðar og másandi á fystu 10mínútunum og heeeeellingur eftir... Tóta greyið snéri við snemma þar sem hún var við það að æla kókómjólkinni og samlokunni góðu.

Ég hélt samt semáður áfram og skipaði henni að leggja sig bara inní bíl á meðan ég púlaði Svalur ég var nú langt langt á eftir hópnum sem var örugglega kominn uppá topp þegar ég var enn í byrjunarbrekkunni, en það var ágætt með Michael Jackson í ipodinum og þrjóskunni fór ég lengra og lengra...

Ég fór nú ekki uppá topp í fyrstu atrennu, hætti í Vaðinu sem er í 393m hæð svo ég hef eitthvað til að bæta þegar ég fer næst! Aðalatriðið er nú að FARA! eða það finnst mér allavega.

Svo er eiginlega ekkert hægt að röllta bara niður þetta er svo bratt að ég skokkaði bara og þá kom líka svitinn hehe

Ég er bara þokkalega sátt með árangurinn miðað við að ég er stórreykingakona með ónýtt bak, léleg hné, tiltölulega nýbúin að slíta lærvöðva og með sama og ekkert þol!


e
Ég setti helling af myndum í myndaalbúmið ef einhver vill kíkja Glottandi

Metropolitan Atlanta Rapid Transit Authority

20. febrúar 2008 klukkan 16:59

jahá! ég var að vesenast á netinu að læra Þýsku um daginn og fór inn á þá stórsniðugðu síðu wikipedia.org.... það fyndna var að ég ákvað að prófa að skrifa marta í wikipedialeitina og sjá hvort eitthvað sniðugt kæmi upp... það hafa örugglega allir "googlað" nafnið sitt en kannski ekki allir sem hafa "wikipediað" nafnið sitt oooooooooooog þetta er það sem ég komst að... huhumm


MARTA
Metropolitan Atlanta Rapid Transit Authority

ÉG ER SEMSAGT LESTARSTÖÐ, RÚTUSTÖÐ OG FLEIRA OG FLEIRA! HAHAHAHAHA ALGJÖR BRANDARI Hlæjandi

Þeir eru með heimasíðu
http://www.itsmarta.com/ 

það er einn dálkur sem heitir "USING MARTA" og þar er hægt að fá upplýsingar eins og tildæmis:

> Fare information

> How to use MARTA

> Hours of opperation

> Parking information

> MARTA accessebility

> New rider guide


Og annar dálskur sem heitir "EXPLORING MARTA"

> when is MARTA Smartest?

> upcoming events

> weekly and weekend passes

Æji mér fannst þetta alveg bara brandari! og upplyfting frá þýskuglósunum haha  og já það er alveg hægt að misskilja þetta líka....svona fyrir perrana hahaha 




p.s. ég heimta comment takk :)

já og auðitað!!
 Ingunn og Garpur áttu loksins litla stúlku í gærkvöldi eftir langa bið Svalur óskum þeim innilega til hamingju!  :)

i want my baby back baby back baby back, ribs....

04. febrúar 2008 klukkan 23:47
Jæja lömbin mín, þá heldur barnafaraldurinn áfram.... enn ein orðin ólétt og þá eru við komin hvað margar á síðast liðnu ári?? að minnsta kosti 8 konur/stelpur sem ég þekki sem eru annað hvort ný búnar að eiga... alveg við það að eiga... eða bara komnar nokkra mánuði á leið... tjah ég er svosem komin á þann aldur að fólk fer að drita niður börnum :) allt gott og blessað með það :) frábært yndislegt, en það vill svo skemmtilega til að það eru bara búinar að fæðast stelpur, já eða nei, einn strákur... alllt hitt eru stelpur.... WOMEN ARE TAKING OVER THE WORLD!!!! HAHAHA

svona í tilefni þess að svo margir virðast vera að stefna í þetta trend í dag þá ákvað ég að googla babyfíver...eða já þið vitið... og hér er nokkrar myndir sem létu mig skella uppúr :)



demanding baby...



úúú sja þessar kinnar....huhummmmm..maybe not



Adolf Hitlers baby...


Það er meira að segja hægt að kaupa barnalampa!!! juchch creepy



Easterbunnys  baby...



 michelinmans  baby



jæja gott fólk, ímyndið ykkur, eftir stutta 9mánuði gætuð þið átt eitt svona... so get humping people...you might miss the babytrain...

HAPPY HUMPING,
MARTA

2008

15. janúar 2008 klukkan 22:06


This is me in the gym Ullandi

Jæja þá! Nýtt ár farið af stað og allir að berjast við að halda við áramótaheitin....
Gaman að fylgjast með því svona í byrjun ársins hvað líkamsræktarstöðvarnar eru yfirfullar af fólki, allir að berjast við að ná af sér jólaspikinu (including myself) Svalur það er alveg sama hvaða tíma dags maður ætlar að fara og loksins ná hlaupabretti, ég fór í gærmorgun kl.8 og þá rétt náði ég hlaupabretti... fór í dag eftir vinnu um 5 og þá mátti ég bara bíða eftir að komast að! ussuss fyrir utan það að það eru ALLTOF mörg bretti og tæki biluð í Sporthúsinu þessa dagana... en það er ljós í myrkrinu... það eru víst komnir nýjir eigendur og þeir eru á fullu að betrumbæta aðstöðuna og tækin... thank god!

áramótaheitið mitt í ár eru þjú H .... hollusta, hreysti og hamingja


Marta
1 athugasemd

Tíminn líður

11. janúar 2008 klukkan 21:00



This is what I´m gonna be doing this weekend

Styttist í jólin!

16. desember 2007 klukkan 23:20
Aðeins átta dagar í jólin!! jæks!

ég er búin að vera að vinna eins og fáviti til 1 og 2 á nóttunni svo ég er engan vegin komin í jólaskapið :( svo vantar líka snjóinn, um leið að það sjóar pínu kemur bara massa rigning og skolar öllu burt uss frekar myndi ég vilja hafa heitt eins og hjá gæjunum á myndinni sem ég set hérna fyrir neðan Ullandi





Það er komið nafn á litla frænda by the way! MAGNÚS VÍKINGUR HJALTASON :) hrikalega krúttlegur prinsinn :)
Marta
1 athugasemd

Prinsinn fæddur!

06. desember 2007 klukkan 23:00
Þann 4.desember 2007, þ.e.a.s í fyrradag fæddist lítill prins í Indianafylki U.S.A.
Gullmolinn var 15 merkur og 52 cm. Fyrir þá sem ekki vita þá eru foreldrarnir Hjalti bróðir og Hulda mágkona Brosandi þeirra fyrsta barn.
Drengurinn lét nú bíða eftir sér, Hulda var sett 23.nóvember en var svo sett af stað þann 4.des fyrst prinsinn neitaði að koma úr hlýjunni hjá mömmu sinni. Fæðingin gekk víst bara vel og Hulda stóð sig eins og hetja þrátt fyrir að hafa misst svolítið af blóði. Ég er annars ekki búin að heyra í Hjalta persónulega, vill svo til að þau tvö skipti sem ég hef reynt að hringja þá eru þau upptekin, eins og við má búast þegar svona mikið gengur á í lífinu Brosandi

Hjalti ætlar víst að hringja í mömmu á eftir og gefa upp hvað prinsinn kemur til með að heita :) hlakka til !!

prinsinn

Get ekki beðið eftir að fá að hitta litla frænda í persónu.....hvenær sem það verður...hann býr nú í annarri heimsálfu Gráta
Marta
1 athugasemd

Loksins loksins!

04. desember 2007 klukkan 09:30
Ok, mér er loksins  búið að takast að setja inn myndirnar síðan við skrifstofu/lager-liðið skelltum okkur til Slóveníu.... þetta er bara búið að taka 8mánuði!! hehe en þær eru hérna fyrir ofan í "myndir" ef eitthverjir hafia áhuga á að kíkja Svalur 
http://smarta.bloggar.is/album/42772/

Rétt að taka það fram að þetta er ekki ritskoðað, tók mig u.þ.b. 2tíma í gærkvöldi að henda þessu inn!

Marta

Desember byrjar með trompi!!

03. desember 2007 klukkan 00:03



Jææja þá er jólahlaðborðið afstaðið eða afdrukkið.....

sjitt ég held án gríns að ég hafi aldrei orðið svona drukkin!!! Lét varla hvítvínsglasið frá mér allt fjandans kvöldið, sem endaði heima notabene heima spúandi eins og múkki Ullandi
Ég held ég láti áfengið vera allavega fram að áramótum!

Mér tókst að slíta einhverja vefi í hægri lærvöðvanum á föstudaginn...prílandi í hillum í vinnunni.... ekki gott fór heim á hækjum en er allt önnur í dag :) Má samt ekki reyna á lappirnar næstu vikurnar hurmpf svo maður lætur ekki sjá sig í ræktinni neitt bráðlega....frekar svekkjandi þar sem maður var komin á gott ról, búin að henda af mér a.m.k. 5 kílóum :)

Jæja ég nenni ekki að blaðra meira...kominn tími á að sofa almennilega úr mér þessa fjandans þynnku!




Marta
1 athugasemd